Thank you, and good night.
Jæja.. þá er ég farinn að sofa fyrir síðasta prófið. 27maí. Þvílíka ruglið, allir löngu búnir. Verð eitthvað rólegur í skrifum á næstunni- enda á leið í frííííí til heitari landa.
So long SUCKERS.
21. maí 2005
Hugleiðingar um Jurassic-vision
Mér fannst þetta svo æðislegt komment sem ég skrifaði hjá Johnny að ég ákvað að hafa það bara sem póst hjá mér líka...
Þetta er skandall.. ég legg til að öllum löndum austur af Þýskalandi verði meinað að taka þátt, og bannað að gefa löndunum sem liggja að þínu landi eða tala sama tungumál eða eiga sameiginlegan uppruna stig. Auk þess legg ég til að Eurovision verði tekin upp fyrirfram og textuð svo ekki þurfi að hlusta á þessi skrímsli reyna að tala ensku... jú annars, það var það skemmtilegasta í þessari keppni. Og áfram óhlutdrægi þulurinn okkar hann Gísli Marteinn krútt.

4. maí 2005
Á að færa flugvöllinn

Morgunblaðið-5maí2005; ýtið á myndina til að stækka
Alltaf er í umræðunni hugmyndir um að færa flugvöllinn úr miðborginni. Ég skil vel sjónarmið beggja fylkinga. Ég skil vel að Reykjavíkurborg vilji nýta þetta mikla landsvæði betur fyrir hönd fólksins í borginni. Ég skil vel rök landsbyggðarfólks, míns hóps, um nauðsyn góðra samgangna við höfuðstaðinn. En hvað er til ráða. Ég sá þessari hugmynd hér að ofan flíkað á forsíðu Morgunblaðsins í dag og leist satt best að segja ekkert svo agalega illa á hana. Þetta er tiltölulega nálægt bænum og Reykvíkingar fá sitt. Eitt sem ég hef áhyggjur af er nálægð við sjúkrahúsin því t.d. fyrir Eyjamenn tel ég það vera einn mikilvægasta þáttinn í þessu máli. Sjálfur hef ég t.d. ekki flogið á eigin vegum til Eyja úr Borginni í háa herrans tíð, enda ekki á færi fátæks námsmanns. Þessi hugmynd hér að ofan myndi eflaust verða til að umferðarmál áleiðis til Þorlákshafnar myndu batna líka þannig að það væri ekki verra.
Hvað finnst ykkur um þetta allt saman?

1. maí 2005
Chelsea meistari 2005

chelseafc.com
Svo lengi sem það er ekki Arsenal...
Nei annars.. þetta er fínt víst United var ekki á skotskónum þessa leiktíðina. Íslendingur í liðnu og svona, það skemmir ekki fyrir. Má væntanlega búast við holskeflu ungra Chelsea-aðdáenda á Shellmótinu í sumar.
Annars er ég alltaf að heyra eitthvað röfl í fólki út af því að það sé verið að kaupa titla. Chelskea!! Það er kannski eitthvað til í því, en er það ekki bara það sama og liðin á Spáni og Ítalíu hafa gert. Er ekki bara fínt fyrir þá sem fylgjast með ensku knattspyrnunni að komið sé nýtt alvöru lið. Fleiri alvöru lið á englandi þýða fleiri enska sem eru að fá mikla reynslu í háklassa fótbolta og það skilar sér eflaust á næsta HM. Bara vonandi að United, Arsenal, Liverpool og e.t.v. fleiri lið nái að halda í við Chelsea þannig að þetta verði aðeins meira spennandi á komandi árum (spurning samt hvort Liverpool eigi heima í upptalningu með hinum liðunum;-).

27. apríl 2005
Blórabögglar

Nú er fólk að fara hamförum yfir því hversu hættulegir STRÁKARNIR á Stöð2 eru börnum þessa lands og að nauðsynlegt sé að færa þá aftar á dagskrá. Las grein eftir einn í fréttablaðinu þar sem hann tekur undir þessa kröfu. Ástæðan? Jú, hann segir frá því að hann hafi rétt náð að stöðva son sinn sem var á leið inn í þvottavél til að standast áskorun félaga sinna. Svo sagði hann að krakkarnir hans væru alltaf í einhverjum leikjum eða drekkandi ógeðisdrykki að strákanna fyrirmynd. Að lokum sagði hann að það væri samt enginn búinn að slasa sig... ennþá. Þetta væri því alltsaman stórhættulegt og rétt að flytja þáttinn aftar.
Come on.
Þarna fannst mér höfundur greinarinna beinlínis vera lýsa því í orðum hversu hörmulegt foreldri hann er og ljóst að uppeldið á krökkum hans stenst ekki lágmarks kröfur.
Það hlýtur að vera hans að reyna krökkunum sínum muninn á réttu og röngu.
Það hlýtur að vera hans að fá krakkana sína til að velja þar á milli.
Það hlýtur að vera hans að banna þeim að horfa á þáttinn ef hann er svona stórhættulegur.
Það hlýtur að vera hans að taka ábyrgð á krökkum sínum.
Fólk ætti að hætta að gera aðra að blórabögglum fyrir eigin mistök.

26. apríl 2005
Af hljóðum og óhljóðum
Nú, í lestrartörn hinni síðari þessa vorönn, er komið gott veður og hiti. Út um gluggan sjást Akrafjall og Skarðsheiði í fjarlægðarbláma. Yndislegt að opna gluggann, njóta útsýnisins, finna sjávargustinn, heyra í fuglunum syngja og öldunum brotna ... og bílunum keyra framhjá. Helvítis bílunum. Ég er orðinn þreyttur á eyrnartöppum þannig að ég er að hugsa um að rölta í Húsasmiðjuna og kaupa mér alvöru hlunka eyrnahlífar eins og ég hef séð nokkra í skólanum með. Skal láta vita hvernig gengur að nota þær. Nenni ekki að hlusta á skrjóðana keyra framhjá lengur.
Hér eru svo myndasyrpa frá skólapartýi um daginn. Þarna var Bjarki mættur og stakk upp á myndasyrpukeppni milli okkar og tveggja bekkjarsystra minna. Keppnin er þannig að sex myndir eru teknar og á þeim sést lítil saga- það par sem átti betri sögu vann. Ég vil meina að við félagarnir höfum unnið. Dæmi hver fyrir sig.
MYNDASYRPUKEPPNI

22. mars 2005
HÆP?

Ég bara get ekki hætt að tala um þennan þátt- og því held ég áfram að gera það. Sá að Andri var að tala um hann og gaf honum góða einkunn. Sagði hann fínan, en vildi meina að það væri svolítið "hæp" í gangi. Ég ætla þá bara að halda áfram þessu hæpi, því ég er búinn að hlaupa þvílíkt LOST maraþon undanfarna viku þannig að ég hef ekkert annað horft á. Ég fékk 18 þætti hjá bróður mínum um daginn og strax eftir fyrsta þátt var mér ljóst að þetta væri eitthvað fyrir mig. Ég hélt ég væri með alla þættina í seríunni en þegar ég horfði á 17 þáttinn í gær sá ég að það gæti ekki verið, því það ætti svo margt eftir að koma í ljós. Það var líka raunin- ég var bara með fyrstu 18 þættina af 24 og þarf því að bíða enn um sinn að sjá hvernig þetta endar allt saman þar sem það er ekki enn búið að sýna 19 þáttinn.
Það sem ég held að geri þessa þætti eins frábæra eins og ég tel þá vera er að þeir sameina í raun alla þá þætti sem ég fylgist með eða hef fylgst með af einhverju viti í einn þátt. Þátturinn er dulrænn og yfirnáttúrulegur eins og X-files, heldur manni í spennu eftir hvern þátt eins og 24, aðalgaurinn er læknir eins og í E.R., fjallar um strandaglópa á eyðieyju eins og Survivor, þetta er ekki ljótasta fólk í heimi sem leikur í þættinum frekar en í Baywatch (já, hver horfði ekki á þá?), fínir karakterar og húmor, góðir leikarar. Allt sem hægt er að biðja um.
Þetta var mitt innlegg í hæpið.

14. mars 2005
My precious

Nú er þetta litla tæki komið á precious listann minn ásamt tölvunni og myndavél. Fékk það í afmælisgjöf frá frúnni og ég held að það sé ekkert skemmtilegra en að fá svona gismo að gjöf. Nú fær mann ekkert stoppað þegar maður vill fara út að hlaupa eða að ryksuga eða eitthvað- hækkar bara í botn á uppáhaldstónlistinni og allt verður miklu skemmtilegra. Svo er maður líka að kynnast betur tónlist sem maður hefur ekki haft tíma til að hlusta á og endurnýja gömul kynni....
Þetta er svona eins og þegar maður eignaðist nýja flotta skó í gamla daga- maður verður aðeins að fá að monta sig:)