16. janúar 2006

Nú má fólk fara að passa sig. Upp er kominn "the list" hér til hliðar. Getur þó bæði verið á jákvæðum og neikvæðum nótum (sbr merki fyrir aftan).

Annars tók þetta á að koma inn nýjum hlut á síðuna, ég er tölvumáls-heftur og er því bara að klippa og líma úr templatinu hér og þar til að búa eitthvað til. Þið verðið bara að þola það. Þetta er ekkert fancy pancy.

En já, fyrsti hluturinn.. Snjór. Þoli ekki snjó. Reyndar fórum við stórfjölskyldan ásamt Sindra og Hildi út að renna okkur á laugardaginn fyrir neðan kirkjuna út á Seltjarnarnesi og það var bara nokkuð gaman. Mættum með uppblásna tuðru og það var eitthvað sem grey borgarbörnin höfðu aldrei séð. Fengum margar spurningar um hvaða undratæki þetta væri og hópurinn sem við keyrðum niður fékk meira segja að prófa eina ferð í sárabætur. Þetta hefði ekki gerst ef snjórinn væri ekki til staðar. +/- á hann. Samt bara mínus. Hann má fara drulla sér í burtu.

15. janúar 2006

Tarantino um Ísland í Conan

Þetta er nú meiri helvítis vitleysingurinn, en um leið snillingurinn. Enda elskum við hann öll.

Það er svo mikið allt að byrja á núlli núna.. djöfulls snilld er það. -- Jákvæður!! allrætíþen.

11. janúar 2006

Þetta er nú ljóta skíta helvítis blaðið. Hlaut að koma að einhverju sem þessu.