

Hef ég einhvern tíma sagt hvað Jack White er mikill snillingur? Ekki á þessari síðu? Ég er ekki svo viss, finnst eins og ég hafi sagt það. Hef allavega sagt það einhversstaðar, einhverntíma, hvar og hvenær svosem það var. Nú ætla ég að endurtaka það. Jack White er mikill snillingur. Nýjasta útspilið hjá honum er "hliðarverkefnið" The Raconteurs. Þeir Jack White og félagi hans Brendan Banson voru víst einhverntíma í góðum gír og sömdu lagið "Steady as she goes" og þá var ekki aftur snúið. Fengu tvo til viðbótar og mynduðu grúppu. Hafa svo gefið út 7" og eru að fara gefa út plötuna "Broken boy soldiers" nú um miðjan Maí auk þess að spila á slatta af tónleikum í sumar, m.a. Hróaskeldu.
Það segir nú meira um mig og mitt líf undanfarna mánuði að ég hafði ekki hugmynd um þetta band fyrr en núna fyrir nokkrum dögum.On the tip of my tongue an offensive is poised and rearing My intention a bullet, my body a trigger finger .... yeah my pen is a pistola