29. september 2004

The invasion of the yellow striped monster.
Creepy, ekki satt. Þessi væni geitungur kíkti inn um gluggan hjá mér í gær þegar ég sat við tölvuna. Ég greip til þess ráðs að slá hann niður með plastmöppu, en hann vildi þótt seint drepast blessaður. Hann vankaðist þó og á meðan náði ég í myndavélina nýju og ákvað að prufa macro-stillinguna. Það tókst svona ljómandi vel og hér að ofan sjáiði afraksturinn. Ég var þó að velta fyrir mér einu. Af hverju heitir þessi stilling macro. Ég hef alltaf haldið að macro stæði fyrir eitthvað stórt og micro fyrir eitthvað lítið. Kannski eru þeir að meina að þetta sé stilling til að stækka smáa hluti... veit ekki. Það má svo bæta því við í lokin að ég slepti greyinu aftur út um gluggan að lokinni myndatöku, veit reyndar ekki hvernig honum reyddi af eftir barsmíðarnar, en hann var allavega lifandi:-)..

en svona til að halda umræðunum gangandi, kann ekki einhver góða sögu af því þegar hann lenti í útistöðum við svona skordýr eins og hér að ofan. Ég get til dæmis minnst á það þegar við vorum að steggja Jón Kristinn þá gerðu nokkrar flugur súg að tveimur persónum sem við skulum kalla Björk og Gvendólína og þær hlupu um eins og litlar stelpur, skrækjandi og vælandi og endaði með að þær stukku inn í bíl og lokuðu að sér. Karlmennskan borðleggjandi. O&O.
Posted by Hello

5 ummæli:

Dabe sagði...

Heyrðu kallinn minn, ekkert svona neitt bull hér... ég breytti þessu aðeins fyrir þig.

Dabe sagði...

Ég hreinsaði ekkert út.. þetta var svona þegar ég sá þetta... held það hafi verið út af því hann setti óvart inn sama commentið 2var.

Andri Hugo sagði...

Geitungar eru bara evil helvítis kvikindi! Flugur frá Helvíti. Ég á helvíti góða mynda af Ragga Ben frá því við vorum í Danmörku '95, þar sem hann baðar út öngum og slær frá sér, skíthræddur við "mannætufluguna" sem var að elta hann, eins og hann kallaði hana! ;)

Nonninn sagði...

Ég skal segja þér eina sögu þegar að ég var í bústað ásamt fjölskyldu minni og frænku minni og frændum. Ég var útá palli og var í góðum fíling að spila fótbolta við sjö ára frænku mína nema að alltí einu heyri ég að það er geitungahelvítisógeð að suða við eyrun á mér og er tilbúinn að stinga mig. Ég beygji hausinn á mér snögglega niður og skalla frænku mína óvart í einnið og hún snarvankast og fékk þessa líka kúlu á ennið enda harður haus að skalla, minn haus sem kallar ekki allt ömmu sína þegar skallað er í annan haus. Ég er enn að leita að geitungakvikindinu !!!

Dabe sagði...

AAAhahahaehehehahaheheha ææ, , djöfull var þetta fyndið.. ég var inn í miðri tölvustofu og skellti næstum upp úr, hló svona inn í mér þannig að það kom svona nasahljóð (þið vitið hvað ég meina), gaurinn við hliðina á mér leit á mig undrandi augum......

Að skalla frænku sína...GOOD SHIT