21. október 2004

Af strætómálum og öðrum málum...... jamm nei samt, sé það núna.. þetta er bara af strætómálum

Það vill svo til nú um mundir að hún Eyrún vinnur upp í Lyngási og þar sem hún fer yfirleitt á bílnum þangað hefur það gerst oftar að undanförnu að ég hef notað strætókerfi borgarinnar til að koma mér í og úr skólanum. Eitt er að ferðir séu fáar og skipulagið heimskulegt, allavega hvað mig varðar. Það er náttúrulega alveg óþolandi. En það er svo annað mál hve tregt fólk getur verið að taka tillit til Strætó. Samkvæmt mínum heimildum hefur strætó réttinn þegar hann gefur stefnuljós inn á götu frá stoppistöð. Samt hef ég tekið eftir því að undanförnu að það eru alltaf ca. 3 eða 4 bílar sem verða endilega að drífa sig framhjá áður en strætó kemst af stað. Þar sem strætó er nú ekki fljótasti fararmátinn þá eru enn frekari tafir af þessum völdum gjörsamlega óþolandi.
Varðandi hraðann á almenningssamgöngum þá finnst mér ekki eðlilegt að ég þurfi að taka strætó hér fyrir utan blokkina hjá okkur og keyra um allan Vesturbæinn áður en hann drullast niður á lækjartorg og þarf svo að skipta um strætó til að fara að B.S.Í./læknagarði. Þetta er leið sem ég er ca. 4 mínútur á bílnum mínum, 12 mínútur á hjóli en heilan helvítis hálftíma í strætó. Alveg óþolandi. Eitthvað virðist þetta þó eiga eftir að batna í vetur þegar nýtt kerfi verður tekið í notkun, en þá fer strætó hér fyrir utan nánast beint niður í bæ. Kannski maður komist þetta þá á innan við hálftíma. Ég á þó eftir að sjá það gerast.
Posted by Hello

3 ummæli:

Andri Hugo sagði...

Strætó er dauði. Ég þurfti að eyða 1 klst. og 40 mín í stærtó á hverjum degi á tímabili þegar ég bjó í rvík síðast. Í vinnuna, heim, í skólann, heim. Dauði og djöfull. Eitthvað sem hefði tekið mest 20-25 mínútur ef ég hefði verið á bíl. Svo er svo skemmtilegt fólk sem fer í strætó!

Nonninn sagði...

Strætó er helvítis viðbjóður, þetta er örugglega heimsmet í heimsku þegar komið er að strætókerfi bæjarins eða borgarinnar. Svo má ekki gleyma þessum yfirburða hressu vagnstjórum !!!

Jóna Heiða sagði...

Já thad held ég ad sé morgunljóst ad almenningssamgöngur í rvkborg eru hryllilegar. Thó ekki eins hryllilegar og í Kuntuhórubaenum Kutná Hora. Thar thurftum ég og Sunna ad bída eftir straetó í klukkutíma og kortér eda jafnlangan tíma og thad tók fyrir mig ad fara í skólann thegar ég bjó í Gardabae og tók straeto.