5. október 2004

I mean.. sniff.. it´s the end of an era...
Veit einhver hver Olden Polynice er...??? nei, ekki ég heldur.. mm eða jú eiginlega. Þetta er semsagt gaurinn sem Seattle fékk í staðinn fyrir Scottie Pippen á sínum tíma. Hafa eflaust nagað sig illilega í handabakið því eins og menn vita þá varð Pippen hluti af mesta sigurliði seinni tíma í NBA körfuboltanum. En nú er semsagt komið að því að þessi ástsæli körfuknattleiksmaður ætlar að leggja skóna á hilluna. Á svona tímamótum rifjast upp fyrir manni þær góðu stundir sem maður átti á vorin hér í gamla daga fyrir framan sjónvarpið. Vaknaði um miðja nótt, náði sér í kók og popp og lagðist svo upp í sófa til að horfa á NBA úrslitin. Það fer um mig sæluhrollur. Sérstaklega er mér minnisstætt einvígið milli Chicago og Phoenix Suns þegar menn eins og Charles Barkley og Frank "hvar er þá Kevin" Johnson voru að spila á móti Jordan, Pippen og auðvitað John Paxon. Þetta voru líka fyrstu úrslitin sem ég horfði á af alvöru, enda ekki nema 13 ára á þessum tíma. Þetta átti maður á spólu.. og á enn og horfði á þetta aftur og aftur.

Ég fór eiginlega að halda með Pippen vegna þess að það héldu allir með Jordan og ég nennti ekki að vera eins og allir hinir, aldrei þessu vant. Í ljós kom að pippen var einstaklega duglegur leikmaður.. skoraði ekki mest, varði ekki flest skot, tók ekki flest fráköst, en var ofarlega í öllu saman, sem gerði hann að einum besta NBA leikmanni sögunnar. Svona leikmenn hafa oftast verið í skugganum en Pippen er einn af þeim sem náðu að skína, allavega fyrir mér. Svipað og er að gerast núna með Detroit leikmennina, sem gera þetta ekki bara út á lúkkið heldur af grimmd og dugnaði. Finnst hafa vantað svona leikmenn í gegnum tíðina. Það er því með söknuði sem ég kveð félaga minn, Pip eins og hann var kallaður, úr boltanum og vona að maður fái að sjá hann allavega þjálfa eitthvað lið í framtíðinni. Held að það verði seint jafn gaman að halda með einhverjum eða einhverju liði eins og Pippen og Bulls á gullárunum ´90-´93.
Posted by Hello

5 ummæli:

Nonninn sagði...

Tim Hardaway hætti held ég núna í ár og er mikil eftirsjá af honum. Frábær leikmaður sem átti því miður ekki marga góða leikmenn sér við hlið til að vinna titla. Alveg sorglegt, ég meina Pippen hafði Jordan !!!

Andri Hugo sagði...

Ég hélt nú bara aldrei með Bulls, einfaldlega vegna þess að það héldu allir með þeim! Segi ég sem held með Man Utd, en það er öðruvísi ... hef alltaf haldið með þeim. Allavega, ég man sko eftir þessum úrslitum á móti Suns. Allir héldu auðvitað með Bulls og ég var einn á móti öllum og tapaði auðvitað :(

Detroit Pistons liðið, sem vann núna síðast, er rosalegt! Þvílíkir jaxlar! Svona á þetta að vera. Nú er bara að vona að Milwaukee Bucks geri góða hluti í vetur! Þeir eru jú með Toni Kukocs (hvernig er það stafað), sem spilaði með Bulls á sínum tíma :)

Nafnlaus sagði...

Snökt, snökt... Þetta var herfilega hjartnæmt hjá þér Davíð minn. Þetta er einn minnisstæðasti íþróttaviðburðurinn í mínum huga. Maður gleymir þessu seint. Annars var hann Olden Polynice ágætis leikmaður á sínum tíma.

Nonni! Hvað áttu við með því að Tim Hardaway hafði aldrei neinn með sér? Hann hafði jú manninn með hermannaklippinguna, stórskyttuna, hinn næpuhvíta Chris Mullin. Stórkostlegur leikmaður.

Detroit liðið í fyrra var stórskemmtilegt. Lið með alvöru karakter og nettur Barkley-andi í liðinu.

Jón Kristinn

Nafnlaus sagði...

Það er allavega ljóst að Pippen gerði þetta ekki út á lúkkið:-)

Dabe sagði...

Svo má ekki gleyma þætti Einars Bolla og var það ekki Heimir Karls sem voru með honum á þessum tíma. Skemmtilegri en þessir skarfar sem eru núna.