18. mars 2006

Hmmm.......

Posted by Picasa

Hversu hress er þessi api? Álíka hress og ég? Nje, varla. Enda er ég hressleikinn uppmálaður þessa dagana- GRÍÐAR HRESS. simskipidudidibab sebab sobab- þið vitið hvað ég meina!

Hvenær hættir tíminn að ryðjast yfir mann á skítugum skónum? Af hverju líður mér stundum eins og í bíómynd þegar allt í kringum mig er óskýrt og á FastForward meðan ég sit rólegur og sötra bjórinn minn og horfi á- jafnvel á pásu? Samt finnst mér eins og ég þurfi að hoppa inn í þvöguna og verða óskýr. Vitiði hvað ég meina? Nei, veit það varla sjálfur. Þetta er alltof heimspekilegt.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú getur huggað þig við það að tíminn er það fljótur að líða að þess er ekki langt að bíða að þú verður sjálfur kominn á óskýru hliðina að bjarga eitthverjum, skipta á kúkableium og ég veit ekki hvað og hvað...

Versta er að ég held að tíminn þar sé jafnfljótur ef ekki fljótari að líða og stundum nett nostalgía að hugsa til "rólegu stundanna".

Eitthver grænn málsháttur, kv. Bjarki

Nonninn sagði...

Þú verður bara að koma til mín 31.mars í gott fyllerí og slaka á. Ég held að það sé bara málið !